ferdafiklar

24.11.2007 12:54:38 / carlorossi

Hittingur

Sælar stúlkur, 

 

Er ekki kominn tími á hitting eða hvað!!! Við Solla vorum í Body Jam áðan í svaka dansfíling og hún sagði mér frá fyrirhugaðri ferð á kaffihús í næstu viku. Ég veit að þetta er stuttur fyrirvari en hvað segiði um að kíkja til mín annað kvöld eða mánudagskvöldið eða bara í kvöld?;)

 

Veriði duglegar að svara skvísurnar mínar.

 

 

 


» 13 hafa sagt sína skoðun

14.09.2007 11:36:38 / Erla carlorossi

Reunion

Reunion!!

Loksins er komið að hinu langþráða Reunion hjá okkur sætustu og flottustu ferðó-skvísum í heiminum!!!!

Eins og sönnum ferðamálafræðingum sæmir þá munum við leggja land undir fót og bruna "alla leiðina" á Skagann því þar sem við erum víst orðnar dreifðar út um allt land þá er það ágætis málamiðlun fyrir alla 8) Mæting verður seinnipart laugardagsins 28.september á Stillholti 19 - íbúð 301 (umtöluð sem flottasta íbúðin á Skaganum :haha:)

Til heiðurs okkar er verið að tala um að halda svokallaða Septemberfest á Akranesi þessa helgina og höfum við því val um að skella okkur á alvöru sveitaball ef okkur langar. Fordrykkur mun taka á móti öllum sem eru nógu sætar (Pálína: Það þýðir ekkert að biðja Sindra um að taka af okkur augnhárin aftur bara til að vera sætust!!!) svo munum við matreiða einhverja dýrindis máltíð saman og svo verður það bara hvítvín í einni og kokkteill í annarri fram á rauða!!!

Hvernig lýst ykkur á?!?

Kveðja
Erla Perla

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

26.04.2007 12:22:07 / Erla carlorossi

Næstum því búnar :)

Jæja núna erum við Rúna, Katrín og moi alveg að klára BS skrýmslin okkar og okkur Katrínu þyrstir í djamm og hitting!!

Fyrstu skilin eru 2. maí og þá verður maður nottla að fá djamm þann 4. eða 5. ehaggi? Hvernig er staðan á ykkur þá skutlurnar mínar? Við Katrín vorum jafnvel að spá í Mallorca reunion - en ef ekki þá allavega hvítvínsþamb ahhaha..

Við getum að sjálfsögðu verið heima hjá mér - þröngt mega sáttir sitja og allt það! Við skemmtum okkur nú konunglega þegar við vorum þar allar alveg út úr kortinu ahahah og Solla fékk verðlaun trekk í trekk, good times!

En hva segiði er stemmari? 


» 19 hafa sagt sína skoðun

16.04.2007 20:31:45 / carlorossi

Flakkarinn brátt á flugi

...Carlorossi stelpur ég er brjáluð að engin af ykkur kom í kveðjupartýið mitt!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! :(

Erla er eina sem sendi mér afsökunarbeiðni!!!!!

Það var samt rosalega gaman og ég skemmti mér vel með vinum hans Stígs jájá þeir mættu..... en mig langar voðalega mikið til að hitta ykkur aðeins áður en ég fer ...þannig að ef þið viljið kyssa mig bless þá megið þið endilega hitta mig annað kvöld ef þið getið. Hvernig líst ykkur á að hittast bara svona kl 21?

Og til hamingju Pálína :)

 

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

13.04.2007 14:29:34 / Pálína carlorossi

Hvað er að gerast?

Já, ég bara spyr... Er þessi síða bara að deyja út? Koma svo stelpur!
Ég verð þá bara að koma með fleiri fréttir af mér. Við Sindri erum LOKSINS að fara að flytja á morgun! Jei, hlakka ýkt mikið til. Það er búið að vera mjög mikið stúss undanfarið að sparsla og mála, skrúfa í sundur og saman, ryksuga og skúra! En loksins er allt tilbúið og við erum formlega búin að fá íbúðina afhenta. Þannig að Ásdís, það verður ekkert partý hjá mér fyrir 17. apríl... En vonandi bráðlega :)

Verðum í bandi!
Pauline


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.03.2007 14:15:01 / Pálína carlorossi

Madrid, borg el vino blanco, H&M og þjófa og ræningja!

Ferðasögu, segið þið...
Madrid var geggjuð! Þessi borg er bara æði, búðirnar, veitingastaðirnir, tapas barirnir, vino blanco, torgin öll þar sem var hægt að sitja úti í sólinni... Yndi! Skoðuðum nokkur hótel og fórum í báðar skoðunarferðirnar með fararstjórunum en höfðum líka fullt af fríum tíma til að skoða okkur um og versla og borða og drekka! Vorum aðeins tipsy í mollinu á laugardeginum, það var bara gaman, maður verslar bara meira!! :lol:  Svo var vinkona mín sem var með mér rænd í lobbýinu á einu hótelinu sem við vorum að skoða! Drama drama...  En já svo hitti ég Steinunni í Madrid! Mjög fyndið, hún var í sömu ferð og ég með vinnunni hjá Svavari.
En þessi ferð bara bara æði og ég mæli með borgarferð til Madrid!

Svo fæ ég íbúðina næsta sunnudag! ohh hlakka svo til! Býð ykkur svo í innflutingspartý/Mallorca partý þegar við erum búin að koma okkur fyrir.

Until next time... Pauline


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.03.2007 11:44:44 / carlorossi

Fatlafól talar....

sjett hvað það er erfitt að skrifa á tölvu með einni hendi..... hehe

Jæja stelpur nú er að duga eða drepast ég ætla að skrá mig í Háskólann næsta vetur og dunda mér í ritgerð ásamt skemmtilegum valáföngum sem heldur mér við efnið :) eru þið með einhverjar tillögur um skemmtilega kúrsa?

skrif 7 mín venjulega 1/2 mín :)

kv.puttalína


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.03.2007 17:55:53 / Sólveig carlorossi

Ansi dauðadæmd síða!

Jæja stúlkukindur!

Eigum við bara að drepa síðuna okkar?

Það virðist alla vega ekki ætla að vera erfitt;)

Allt fínt að frétta hjá mér!

Pálína... komdu með ferðasögu! 


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.03.2007 09:29:20 / Sólveig carlorossi

Nobody puts baby in the corner... og hvað þá í bílatalningu!!!

Ég bara verð að deila með ykkur tveimur hlutum!

Sá fyrri er að ég sat alein og yfirgefin fyrir framan sjónvarpið í gær og þar byrjaði dansþáttur sem heitir Dirty Dancing! Sáuð þið hann kannski! Allavega! Málið snýst um hvaða gella getur dansað slíkan dans og þegar upp er staðið mun ein gella fá titilinn "Baby"!!
Mér finnst hins vegar út í hött að það skuli vera staðið í þessu þegar við vitum allar að þeir einu sem eiga að bera nöfn persóna úr þessari bíómynd erum við!!! Og hana nú!!! (Ég reyndar man ekki einu sinni hverjar heita hvað og hverjar báru yfirhöfuð nöfn úr myndinni;))

Svo sá ég í morgun gellur í bílatalninu! Já stelpur, það voru góðu tímarnir! Vakna eldsnemma til þess að gera ekki neitt nema hreyfa puttana! Ahhhh....! 

 Jæja,

Fleira var það ekki í bili!

kv,

Solla 


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.03.2007 15:47:56 / Sólveig carlorossi

TAKK FYRIR SÍÐAST!!!

Ég vildi bara segja takk fyrir æðislega skemmtilegt kvöld á laugardag!! Þið eruð yndislegar!!

Hvenær hittumst við næst? Er það ekki fyrr en 24. mars????

Látið heyra í ykkur!

Kv, Solla    


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.03.2007 13:27:36 / Sólveig carlorossi

Egyptaland og útskrift

Jalla, jalla!!!

Nú er ég komin heim þrátt fyrir að Viktor hafi fengið ansi góð tilboð í mig! Verð ég ekki bara að halda að kallinn elski mig svona úr því hann seldi mig ekki fyrir 60.000 cameldýr!

Ferðin var í einu orði sagt: ÆÐISLEG!! Ég er samt ekki að trúa því hversu mikið og margt við gerðum á þessum stutta tíma: píramídar, sphinx, hádegismatur á Níl, Egypska safnið, múmíur, bazar, prútt, falafel, hummus, flug, ritz-carlton, einkaströnd, risa herbergi, eyðimerkursafarí, Bedúínar, cameldýr, fjórhjól, kvöldmatur á ströndinni, vatnspípur, snorkl ofl, ofl, ofl!!!!

Ég er ennþá að átta mig á þessu öllu saman!

Um helgina var svo útskriftarkaffi hjá mömmu og pabba og það er því svona að sökkva inn í hausinn minn að ég sé búin með þetta nám! Og ég trúi ekki öðru en að eftir partýið næstu helgi verði ég tilbúin í að sætta mig við lok þessa skemmtiega tímabils;)

Og hér er því boðskortið í partýið:

"Kæra vinkona, í tilefni þess að ég er loksins, loksins, loksins komin með b.s gráðu í ferðamálafræði þá ætla ég að bjóða þér og þínum ektamaka (ef þú skyldir eiga einn slíkan) í partý næstu helgi! Herlegheitin verða á Q-BAR (já þessum sem er kominn út úr skápnum og er ennþá skemmtilegri fyrir vikið. Ég fékk nóg af kallinum á Domo enda var líka búið að reka hann þegar ég kom heim frá Egyptalandi) á laugardaginn og opnar húsið klukkan 20:00. Ef þið viljið nú væta kverkarnar vel og vandlega þá legg ég til að þið mætið snemma! Því annars er hætta á að allt verði búið! ;). Látið mig vita ef þið komist ekki! Annars sjáumst við hress á laugardag! kv, Solla"

Er þetta ekki bara fínt boðskort sem þið fáið;)

En hvernig er í nýju vinnunni Katrín, Ásdís hvenær ferðu í reisuna miklu, Erla hvernig gengur með ritgerðina, Rúna hvar í veröldinni ertu kona og Pálína hvað keyptirðu í kóngsins Köben (þú svarar bara þegar þú ert komin heim)? 

Látið heyra í ykkur!

Knús,

Solla 


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.03.2007 11:45:56 / Erla carlorossi

Föstudagur!!!!

Fannst eitthvað lítið vera gerast á þessari síðu okkar og ákvað að brjóta ísinn!!! :haha:

Takk æðislega fyrir s.l. laugaradagskvöld elskurnar mínar!! Ótrúlega gaman að sjá ykkur þó svo að stutt hafi verið! Innilega til hamingju með útskriftina ykkar elsku Pálína og Solla - FERÐAMÁLAFRÆÐINGAR!

Nú er bara komið að okkur, afganginum, að klára þetta dæmi svo við getum allar verið fanzý ferðamálafræðingar!!! 8)

Hvað ætlar svo útskrifaðir og næstum því útskrifaðir ferðamálafræðingar að gera þessa helgina sem er að ganga í garð?? Þessi næstum því útskrifaði ferðamálafræðingur ætlar að stuðla að því að hann nái einmitt að útskrifast og því ætla ég að loka mig inni alla helgina og skrifa svona eins og eina B.S. ritgerð eða svo!! hehe... eins og það sé barasta ekkert mál! Allvega ætla ég mér að komast vel af stað með hinn afar fræðilega hluta!

 En tjáið ykkur litlu lömbin mín, hvað er planið??

P.S. Solla, velkomin heim frá útlandinu!!! Segðu okkur frá Egyptalandi!


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.02.2007 22:02:26 / Katrín carlorossi

Gleðigormurinn

Mig langar bara að deila hamingju minni með ykkur... ég skilaði BS ritgerðinni í gær!!!! Jibbí! :)

» 4 hafa sagt sína skoðun

23.02.2007 15:57:59 / Sólveig carlorossi

Egyptaland!!!!

Ég bara varð að skella inn einu litlu bloggi því ég er að fara til EGYPTALANDS á morgun!!!!

Jey!!!

Góða skemmtun annað kvöld og reynið nú að drekka ekki of mikið lömbin mín!

Maca salāma

;)

kv,

Solla 


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.02.2007 09:35:47 / Pálína carlorossi

ÚTSKRIFT!

Jæja girls

Þar sem maður er nú að útskrifast á laugardaginn ætla ég að halda smá partý á laugardagskvöldið, kl. svona átta. Ég ætla að bjóða ykkur upp á snittur, hvítvín og bjór en ef ykkur langar að detta í það og verða ógeðslega fullar (sem ég geri fastlega ráð fyrir!) getið þið komið með ykkar áfengi líka :D Verð bara með svona smá smakk fyrir alla með snittunum. Þið verðið allar að koma, nema þú Solla, þú mátt fara til Egyptalands í staðinn. :D

Sjáumst á laugardaginn!
Pálína Ferðamálafræðingur


» 11 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
RSS tengill